Brátt fer að verða "skemmtilega" fundarfrært að nýju á ritstjórn Birtíngs

Illugi Jökulsson minn gamli og góði vinnufélagi, ritstjóri með meiru er mættur til starfa.Það er vinalegt að sjá hans einstöku sænskættuðu bifreið lagt fyrir utan vinnustað minn að nýju. Rauði Volvoinn hans Illuga er ákaflega táknrænn fyrir manninn og það eru líklega komnir ár og dagar sem hann hefur ekið á þessum bíl.

Fyrst man ég eftir honum innar í götunni í húsi Þýsk Íslenska. Þar unnum við bæði hjá Genialoga Islandurum, miklu spútnikfyrirtæki sem fór lóðrétt á hausin eftir árið. Illugi var að skrifa Öldina síðustu, fyrir Jóhann Pál, en ég varð að vinna að bók um ættir manna og skrifa ítarefni um merkismenn og konur sem hægt var að finna heimildir um. Það er svo merkilegt með þessa eðalbifreið að þótt að milljón aðrir bílar séu á planinu, sér maður bara þessa einu bifreið. Það er bara ekki hægt að komast hjá því. Bifreiðin er Illugi holdi klædd, svei mér þá og ég held að alla mína ævi muni ég horfa á Illuga sjálfan þegar ég sé svona bifreið. Hann er hún og hún er hann, svo einfalt er það 

En leiðir okkar Illuga lágu saman á þeim mæta vinnustað.  Við vorum eigi að síður tæplega málkunnug eftir það ár, enda vann hann ekki á staðnum, kom aðeins uppeftir annað slagið. Illugi er heldur ekki sú manngerð sem tekur eftir einhverju sem hann þarf ekki að veita athygli.

Á DV var ekki hjá því komist að kynnast ritstjóra sínum. Það var heldur ekki hjá því komist á endanum en að festa á hann ást. Eins ólíkir þeir Mikael Torfason og hann eru, þá eiga þeir það sameiginlegt að miðaldra blaðakonur, lesist kona festir á þá ævilanga ást sem hvorki tíminn sjálfur ágreiningur né táradalur fær grandað. Og nú er hann kominn til að ritstýra að nýju - því miður bara allt öðru blaði og á allt öðrum forsendum en hér í eina tíð. Ég el þó þá von í brjósti að það fari að vera "skemmtilega" fundafært að nýju. Svo ekki sé talað um þegar fréttastjórinn fyrrverandi og ritsjórinn Reynir kórónar það og mætir á svæðið. Þá verður mér hugsað til stressandi krísufunda eftir hádegi á föstudögum á skrifstofu Illuga, sem voru engu líkir. En alltaf skemmtilegir. Hvernig átti annað eins að vera þegar fjórar manneskjur, eins ólíkar hverjum meðalljóni og hugsast gat, létu gamminn geysa og köstuðu á milli sín hugmyndum sem oftar en ekki varð úr forsíða sem tók öllum öðrum fram.


Siðaskrá DV - Geiri - Ragnheiður - Jakobína og forvitna blaðakonan

 

Denni skrifar færslu um hina nýju siðaskrá DV, sem birt var á heilsíðu í fyrsta tölublaði nýs árs, undir ristsjórn Sigurjóns M. Egilssonar. Við lestur hennar leyna sér ekki fingraför míns gamla ritsjóra, Jónasar Kristjánssonar. Og þar er svo sem fátt nýtt ef litið er til árdaga Fréttablaðsins en hún minnir um margt á þá siðaskrá sem hann samdi fyrir hið nýja fríblað á sínum tíma.

Ég minnist þess að lögð var áhersla á að við færum eftir siðaskrá blaðsins í einu og öllu og tækjum þær reglur sem þar voru settar fram hátíðalega. Sem og við gerðum. Man ég í því sambandi eftir atviki sem olli mér nokkru hugarangri en það var þegar ég ég heimsótti skömmu síðar Íslenskan heimilisiðnað að leita fanga fyrir Heimilisblaðið sem þá kom út vikulega.

Konurnar sem ég ræddi við voru einkar almennilegar og vildu endilega leysa mig út með gjöfum, ef hægt er að kalla þær því nafni. Svo lítilfjörlegt var það að ekki flokkast það undir mútur. Annarsvegar var íslensk grjótvala in í prjónuðum litlum pung, dregnum saman að ofan og penni, merktur Íslenskum heimilisiðnaði. Þegar ég kom upp á blað, helltist yfir mig samviskubit þegar ég áttaði mig á að ég var að brjóta siðareglur blaðsins með því að þiggja þetta lítilræði að gjöf en afþakka það ekki.

Ég var fljót að láta þetta hverfa af skrifborðinu mínu og fór með það heim og gaf það einhverju af fólkinu mínu. Og fann fyrir miklum létti. Var dauðskelkuð um að Jónas tæki eftir þessu og færi að spyrja út í þetta smádót. Sem var náttúrulega tóm paranoja því Jónas gekk alls ekki um sali í þeim tilgangi að nappa mann og annan.

Þannig tókum við á hlutunum í þá daga. Og allar götur síðan á FB gætti ég þess sérstaklega að fara í einu og öllu eftir reglunum. Oft þurftum við mikið að hafa fyrir því, eins og að láta ekki frá okkur viðtöl út úr húsi. Þá fór maður sjálfur með þau tilbúin til viðmælenda og hann fékk að lesa yfir og breyta; en aðeins því sem haft var eftir viðkomandi í beinni ræðu. Á meðan stóð maður yfir viðmælandanum og gætti þess vel og vandlega að hann færi ekki að krukka í það sem frá manni sjálfum kom eða það sem skrifað var í óbeinni ræðu.

Ég minnist á þetta hér vegna þess að Denni birtir bréf frá einhverjum ónefndum. Þar er vakin athygli á að systir mín á DV hafi alls ekki farið að reglum í þessu fyrsta blaði. Ég hef ekki talað við Jakobínu og spurt út í þessar tilteknu fréttir eða viðtöl þar sem hún ræðir að því Denni segir við bróður okkar Ásgeir Þór Davíðsson og systur okkar Ragnheiði.

Nú veit ég ekki hvort Jakobína sem er úrvalsblaðamaður ræddi í eigin persónu við systkini okkar eða fékk einhvern annan blaðamann til að leita upplýsinga hjá þeim sem hún síðar nýtti í sínar greinar. En svo mikið þekki ég Jakobínu að ég veit að hún er samviskan uppmáluð og eins og tvisvar tveir eru fjórir hefði hún aldrei rætt við Ragnheiði og Geira sjáfl, nema vegna þess að hún hefur talið það í lagi. Siðaskrá Jónasar hefur líklega ekki verið birt fyrr en í blaðinu um leið og það kom út; án þess að ég viti það. Líklegra finnst mér að einhver annar maður hafi leitað umsagna hjá þeim Ragnheiði og Ásgeiri Þór og Jakobína fellt inn í sína frétt/grein. 

Þannig unnum við blaðamenn á Frettabl. og DV, fréttir ef hagsmunir voru í húfi. Enda sjálfsagt að fara að reglum. Undanteking á þeirri reglu var innblaðsefni; hreint skemmtiefni.

"Bréfritari" Denna bendir á að síðustu að aðeins hafi vantað mig, stóru systur: "Hún hefur líklega ekki náð í blaðkonuna Bergljótu Davíðsdóttir stóru systir sína sem alltaf lumar á góðum fréttum." Hvað hún hefði svo sem átt að spyrja mig um, veit ég ekki enda er ég bara nobody og lítið spennandi að spyrja mig einhvers.

"Gaman væri Denni minn, að vita frá hverjum hugasemdin eða bréfið barst, viljirðu nefna það svo. Ég er ekki forvitna blaðakonan fyrir ekki neitt og iða í skinninu; ja nema.... já nema... Nei best að segja sem fæst. En svo mikið veit ég að það eru aðeins þeir sem þekkja okkur sem tengja okkur systkinin sama Ekki kannast ég við að nokkur viti um tengsl okkar, nema starfsfólk fjölmiðlanna sjálfra sem við höfum starfað á og það er fjarri lagi að þeir séu margir; kannski örfáir.

 Mér finnst ég samt; svona innst inni, finna lyktina af þessum pistli langar leiðir. Lyktina sem þessi ábyggilegi fréttamaður á fyrrverandi DV skilur eftir sig og angar alla leið hingað austur í Hveragerði. Ekki kæmi mér á óvart að þetta bréfkorn sé runnið undan rifjum góðvinar míns og kollega á DV, nú á Fréttablaðinu. Gæti verið að fyrsti stafurinn í nafninu hans sé JAKOB? Þori þó ekki að fullyrða það, en nokkrir aðrir koma til greina.

Spyr sá sem ekki veit! En til að taka af öll tvímæli er mér slétt sama þó á mig sé minnst; ætti að kitla hégómagirndina í öllum venjulegum nobodyum. En ég hef svo sem aldrei verið venjuleg. Verra finnst mér að fagmennska systur minna Jakobínu skuli dregin í efa. Það á hún sannarlega ekki skilið. Denni minn, þú mátt gjarnan svala forviti minni og upplýsa þetta mál, eða biðja "mannskrattan" að skrifa mér sjálfur.

 


Reynir og og hans fólk snýr aftur og öll dýrin í skóginum orðnir vinir.

 

Ég er ósköp fegin að þurfa ekki að vera lengur í samkeppni við Reyni vin minn Traustason. Það hefur líklega ekki fari mér vel að standa í hnútakasti við hann sem andstæðing. Mun betur fellur mér að vera með honum í liði og ég hlakka til að taka til starfa á nýju ári og byggja áfram upp gott blað með nýjum liðsmönnum; eða gömlum, allt eftir því hvernig á það er litið.

Elsku kallinn hefur stundum verið sár út í mig; ekki fundist hann eiga það skilið frá mér að ég væri að hnýta í hann og verk hans hér á síðunni minni. Mest hef ég samt verið að stríða honum; einmitt vegna þess að ég varð þess vör að sú stríðnin sú hitti í mark. En það var fjarri mér að einhverjar meiningar lægju að baki. Þeir þekkja það sem hafa verið í íþróttum að engin er annars bróðir í leik. Og Reynir sjálfur fór ekki dult með að svo er ekki.

Sjálf var ég í mörg ár í keppnisliði og stelpurnar í KR, Víkingi eða Fram voru svarnir óvinir á vellinum. En þess á milli vorum við bestu vinkonur. Þannig er keppni á milli liða. Reynir gekk úr liðinu og fór í annað og þar með var hann svarinn óvinur á vellinum. En lengra náði það ekki; hann var vinur minn eftir sem áður utan vallar. En ósköp þykir mér gott að við skulum vera komin í sama liði aftur.

---------------------------------------0000-----------------------------------------

Annars voru áramótin nokkuð góð hjá mér ef frá eru talin lætin á gamlárskvöld og langt fram eftir nóttu á nýju ári. Ekki það að ég sé orðin svo gömul að ég þurfi að loka mig inni á baði í beinu sambandi við 112, eins og blessuð gömlu hjónin í Garðabænum sem sagt var frá í fréttum í gærkvöld. En hundarnir mínir áttu bágt, ekki síður en þau gömlu. Gná, tíkin mín sem var með sólahringsgamla hvolpa, (sjá www.sifjar.is ) var frávita af hræðslu við hvern hvell allan daginn. 

Um miðnætti skrúfaði ég sjónvarpið með tónleikum frá Hallgrímskirkju á fullt, lokaði öllum gluggum og hurðum til að hún heyrði sem minnst og reyndi að láta sem ég vissi ekki af látunum. Ég óttaðist að hún missti alla mjólk og hamaðist við að gefa henni að borða og drekka allt það besta sem hún vissi. Hún fékk helminginn af kengúrusteikinni sem við snæddum í kvöldmat og þeyttan rjóma eins og hana lysti. Ég vakti alla nóttina yfir henni og það var ekki möguleiki á að koma henni út að pissa; og ekki enn með góðum móti.

En allt fór þetta vel. Hún mjólkar sínum yndislegu sex hvolpum vel og er að róast. Þær voru svona hræddar þrjár af fimm tíkunum en sú elsta og kötturinn sem eru jafngömul, rótuðu sér ekki, enda lífsreynd og öllu vön.

Við vorum bara tvö heima í fyrsta sinn frá því ... jaa ég veit bara ekki hvenær. Líklega á ævinni. Mér þotti það gott; líkar illa partýstand þetta kvöld. Hef reyndar alla tíð frá því ég eignaðist börn, verið þeirrar skoðunar að gamlárskvöld sé ekki til drykkju fallið. Finnst öll önnur kvöld ársins betur til þeirra iðju gerð.

Auk þess finnst mér það nánast helgispjöll að ganga inn í nýtt ár illa fyrirkallaður. Þá á maður einmitt að vera góðu formi, vel út sofin og hress. Mér finnst ömurlegt að vakna á nýju ári einhvern tíma síðdegis grúttimbruð og ómöguleg. Hef ekki gert það síðan ég var nítján og á klárlega ekki eftir drekka mig timbraða úr þessu á gamlárskvöld.

 

 


Glæpamenn, perrar og níðingar þessa lands önduðu léttar í byrjun árs og una nú glaðir við sitt

Ekki get ég sagt að ég sakni ársins sem var að ljúka. Skelfilega erfitt og leiðinlegt ár er að baki. Það byrjaði illa með ofsóknunum og múgsefjun sem beindust að okkur vinnufélögum á ónefndu blaði. Og ég skef ekki utan af því; vikan sú um miðbik janúar, var ein sú erfiðasta sem ég hef lifað. Það tók mikið á að vera í hringiðu þeirra átaka.

Aumt var að fylgjast með Þórðargleði kollega okkar; þeim sem komnir voru með glampandi geislabaug um leið og helgislepjan vall út úr þeim skinhelgustu sem nutu þess að æsa upp lýðinn sem brást við af heift. Þar apaði einn eftir öðrum. Menn voru ekki menn með mönnum nema fyllast heilagri vandlætingu; hlaupa til umhugsunarlaust eins og þeir sem hæst höfðu og æða áfram með kyndla og heimta aftöku dómstóls götunnar. Ótrúlegt var að fylgjast með skýrleiksmönnum, vel gefnum og virtum af sínum verkum, breytast í blóðþyrst villidýr.

Minna fór fyrir skýrri hugsun og það var í lagi að meintur barnaníðingur væri hafinn upp til skýjanna. Ekkert skipti máli annað en hengja sendiboða þeirra válegu tíðinda sem flutt voru á síðum þessa skelfilega blaðs, sem átti upptök af öllu illu sem aflaga fór í þessu samfélagi okkar; eða gott sem. Og verstu perrar og níðingar þessa þjóðar vörpuðu öndinni léttar; þeir áttu ekki lengur á hættu að verða nafngreindir í fjölmiðlum þessa lands og gætu því haldið áfram sinni þokkaiðju.

Og það hafa þeir svo sannarlega nýtt sér... Allt í fína, enginn veit hverjir þeir eru. Aðeins að titrings gæti hjá einhverjum þeirra vegna Kompás. En það er lítið að óttast; Kompás er bara einu sinni í viku. Og perrar og níðingar eiga enn hauk í horni meðal skinhelgra fjölmiðlamanna og þeirra háværu vandlætingarradda sem fordæma áfram.

Já, svona viljum við augljóslega hafa þetta áfram og ekki er von til að mikið breytist á þessu herrans ári, 2007 frekar en þeim næstu sem á eftir koma, trúi ég.


Ritstjórar DV á lausu - í boði Stefáns Pálssonar

 "Blaðamannahjörðin hefur meira að segja gert hlé á hver-fer-að-vinna-á-nýja-tímaritinu færslunum sínum..."

Hver annar en Stefán Pálsson hefði getað orðað þetta skemmtilegra? Já og til að gleðja hann blessaðan og í þakklætisskyni fyrir yndislega hnyttinn texta ætla ég einmitt að skrifa færslu um uppáhalds efnið hans hér á Moggabloggi sem hann les af hjartans list á hverjum degi. Í þínu boði Stefán:

Jæja þá eru fréttirnar af DV og öllu makkinu sem þar hefur verið í gangi öllum ljósar. Nokkuð sem maður vissi og annaðhvort mátti ekki segja eða gat sér til og vildi ekki upplýsa. Það er eins og hvert mannsbarn veit ekki hægt að halda fréttum af svona breytingum leyndum lengi. Of margir vita hvað er í gangi og óhjákvæmilegt að eitthvað leki.

Ég get ekki annað en fagnað því að fá DV aftur á hverjum degi og efast ekki um að sme á eftir að gera fína hluti með blaðið. Hann kann til verka og hans sterka hlið er að rífa eitthvað upp úr öldudal og hann er snillingur í að fá fólk til að vinna með sér. Sjálfur er hann ósérhlífinn og kraftmikill og elskar að vera kallinn í brúnni.

En að er enginn án lasta, hvorki ég, Sigurjón, né neinn annar. Út í þá sálma verður ekki farið hér enda alltaf skemmtilegra að horfa á björtu hliðarnar. Ég efast hins vegar ekki um að sme er sjálfum fullkunnugt um hvar hans veiku hliðar liggja og ætti ekki að vera skotaskuld úr að taka sig í gegn.

Mest um vert er þó að kallinn fái góða áhöfn á ritstjórnina og ef honum tekst að manna hana vel og honum ber gæfa til að láta fagmennskuna ráða en ekki blessaðar tilfinningarnar, er mikils að vænta. Þeim feðgum óska ég velfarnaðar en Janus er kominn á heimaslóðir aftur og með honum þekking og reynsla frá fyrri mentorum sem er ekki svo lítils virði þegar af stað er farið.

Ekki er ljóst hvar þeir Óskar og Freyr enda, en ég furða mig á að ekki skuli vera boðið í þá úr öllum áttum. Báðir snillingar á sínu sviði. Freyr ótrúlega klár í framsetningu á efni og hefur auga fyrir smáatriðum auk þess að vera hugmyndaríkur og með með mikla næmni fyrir því sem öðrum er ekki alltaf augljóst.

Óskar er hins vegar fréttahaukur af Guðs náð, með ótrúlega gott auga fyrir vinkli á frétt og framsetningu hennar. Hann er svakalega vel tengdur og hefur þann hæfileika að geta spurt þannig að hann fái svör. Óskar er líka sérlega næmur á að sjá hvar styrkleiki annarra fréttamanna liggur og tekst alltaf að fá það besta út úr fólki enda mjög hvetjandi og uppörvandi. Það er líka gott að vinna undir hans stjórn og hann hefur góðan aga á mannskapanum án þess að þurfa að grípa til þeirra ráða að hækka róminn eða vera á einhvern hátt óægilegur. Hann nær að virkja að besta í manni og gera vinnuna ánægjulega og mikilvæga. Svo er hann eldklár, skrifar góðan texta og er í alla staði frábær fréttastjóri.

Ég trúi ekki öðru en aðrir fjölmiðlar verði á höttunum eftir þeim félögum, nema að menn geri sér alls ekki grein fyrir hve hæfileikamiklir þessir strákar eru. Þeir hafa haldið sig til hlés og forðast að láta bera á sér þvert á það sem aðrir í þeirra stöðum gjarnan gera. Það kann það að koma þeim í koll núna þegar tækifæri gefst til að selja sig dýrt. Með fullri virðingu fyrir Trausta mínum fyrrveransi vinnufélaga og núverandi ritstjóra Blaðsins, held ég að sú staða hefði verið sniðin fyrir Óskar og ar hefði hann sæmt sér vel.

En oflof er háð og best að láta staðar numið: Ætlun mín er alls ekki sú að þessum pistli verði tekið þannig, því það var ekki meininginn. Mér er bara annt um báða þessa stráka sem ég hef unnið með á erfiðum tímum sem tengt hafa menn betur en ella. Vona bara að þeir endi þar sem þeim ber.

------------------------------------------------------- 0 ---------------------------------------------------

 

Og svona í blálokin fyrir þá mjúku; Gná mín er enn ekki komin af stað. Hún er á 62 degi á morgun og ég get ekki ímyndað mér annað en allir þessir hvolpar fari að vilja sjá dagsljósið og hún fari af stað á hverri stundu. Einn sólahringur hjá tík er eins og fimm dagar hjá konu. Og þar hafið þið þann fróðleik. Segið svo að það sé ekki ýmislegt hægt að læra af blogglestri.

 


Hvolpabarna vænst á næstu tveimur sólahringum

 

Gná mín, sem kyssir mig svona ástúðlega á myndinni hér á ofar síðunni og er hér á mynd með þau Erp, Emblu og Freyju úr síðasta goti, á vona á sér núna fyrir áramótin. Hún er á sextugasta degi í dag en tíkur ganga að jafnaði ekki með lengur en 63 daga. Þetta er hennar annað got en síðast átti hún á sextugasta eða sextugasta og fyrsta degi. Ég á því von á allt að sjö litlum hvolpabörnum nú á næstu tveimur sólahringum.

Það tekur á taugarnar að bíða eftir goti því það er eP1010063kkert gefið í þessum efnum. Got er áhætta fyrir tíkurnar og maður veit aldrei hve marga hvolpa maður fær á lífi. Og það tekur á að missa hvolpa skal ég segja ykkur. En ég hugsa ekki einu sinni út í þá skelfilegu sorg sem yfir mig legðist ef eitthvað kæmi fyrir Gná mína. Þeir vita hvað ég er að tala um sem þekkja mig. Þannig vonar maður það besta.

Ég fór með Gná í skoðun til dýralæknisins í dag og hún var ekki í vafa um að þetta kæmi hjá henni á næstu tveimur sólahringum. Hún fór líka röntgen til að ég geti verið nokkuð viss um hvers er að vænta. Ég vissi að þeir yrðu margir, gætu orðið fimm eða sex, en ég reiknaði ekki með sjö. Ég mun því tæplega líta upp næstu dagana því það er sko vinna að vera með sjö hvolpa got. Maður vakir nánast út í eitt því þarf ekki mikið út af að bregða ef maður ætlar að halda öllum á lífi.

En þetta skilja kannski þeir einir sem lifa og hrærast í þessu en hinir geta hreint ekki áttað sig á hvað er í gangi. Finnast hundar vera hundar og ekkert annað. Sem þeir vissulega eru, en þeir eru bara svo miklu meira en hundar. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að útskýra hve vænt mér þykir um hundana mína. Og má ekki til þess hugsa að eitthvað hendi þá. Því eru krossaðir fingur hér og ég reyni að trúa ekki á fyrirboða en ég skrifaði nafnið hennar Gná í tvígang án G hér í upphafi færslu. Úff... og það fór um mig.


Hélt ég væri ekki lengur forvitin blaðakona heldur, spunameistari og héti, Denna Arnarr, Petra Gunna, Birna eða Sigmör

 

Nei, nei, ég er ekki alveg hætt að blogga, en ég starfa við það að skrifa annað en blogg og fæ greitt fyrir það. Það er því engin spurnin um forgang. Það er líka eins og allt hellist yfir mann sömu dagana. Síðustu daga hef ég sumsé setið við tölvuna, hér heima og í vinnunni og skrifað ... talað, spurt, fengið svör og skrifað enn þá meira.

Á meðan hryn ég niður í heimsóknum, ég sem var komin í sjötta sæti á lista vinsælustu bloggara á Mbl. Dansaði um á forsíðu Moggabloggs kyssti hundinn Gná sem aldrei fyrr. Voða hreykin og upp með mér. Fannst um tíma að ég væri bara nokkurs mikils virði... já, ég væri nú jafnvel ögn skemmtileg stundum og það væru nú kannski einvherjir aðrir en vinir og kollegar sem nenntu að lesa hratið sem upp úr mér hrykki.

Þegar heimsóknir fóru yfir tvö þúsund einn daginn fór ég meira að segja að finna fyrir dálítilli framsóknargæfu, innra með mér. Kannski blóðið hafi varið að renna til skyldunnar?  Því til sönnunar, vissi ég ekki af fyrr en ég var búin að hringja í umhverfisráðuneytið og tala með tungum tveimur við Jónínu Bjartmarz. Gerðist svo djörf að segja henni hvað væru forgangverkefni ráðuneytisins.

Þið sem ekki hafið hugmynd um hvað  það er skal upplýst að það þarf auðvitað að taka rækilega til endurskoðunar lög um dýravernd fá 1700 eða 1800...  Nei það eru kannski ýkjur en frá því snemma á síðustu öld alla vega.

Endaði á að bjóða ráðherranum liðsinni. Hún gæti hæglega tilnefnt mig í væntanlega nefnd. Og við gætum alveg rutt þessu frá fyrir lok vorþings. Háttvirtur ráðherra tók þessu vel og Nína, mín gamla skólasystir bað mig endilega að skrifa rökstuðning og tromma síðan í ráðuneytið með þá sem væru í forsvari þeirra sem ættu hagsmuna að gæta í þessu máli.

Það er því ekki skrýtið þegar ég fylgdist með öllum þessum heimsóknum að mér færi að líða eins og ég héti ekki lengur Bergjót og væri kölluð Begga, væri ekki forvitin blaðakona, heldur orðin spunameistari eða eitthvað enn merkilegra. Kannski héti ég bara, Denna Arnarr, Birna Birnudóttir, Guðmunda, Petrína eða Sigmögur. En það er með velgengnina eins og svo margt annað, hún getur snúist í hönum manns ef maður gáir ekki að sér.

Og á nokkrum dögum er ég komin í hóp aumustu bloggara. Við engan er að sakast nema sjálfa mig, nema vera skyldi Mannlíf og skrattakollinn hann Mikka sem hefur yfir mér forræði. Mannlíf er sem sagt að fara í prentun á miðvikudagsmornun og það var ekki um annað en ræða að hella sér í vinnu, ef maður ætlaði ekki að sitja yfir jólin við skriftir eða með uppsagnabréfið í höndunum. Hvort það hefði ekki verið betra að sjá tölurnar tikka á blogginu og fara upp, upp og upp?

Já, Mikki Torfa, sá kauði hefur ýmislegt á samviskunni, eins og þjóðin náttúrulega vissi hérna um árið.  En ég vissi auðvitað betur, hef vitað lengi og veit enn að samviska hans var ekki svo mikið sem gráföl. Núna hefur hann bætt í hana svörtu kóninn sá, með því að setja mig út af sakramentinu á Moggabloggi. Nú má ég þakka fyrir að fá fimm heimsóknir á dag ef ég verð virkilega dugleg og opna allar þrjár tölvurnar hérna heima, mína í vinnunni og tek um kverkarnar á Magnúsi áður en hann fer í vinnu eða neita að sofa hjá honum þegar hann kemur heim nema að hann opni líka bloggið mitt. 

Nema ég fari að skrifa eins og manneskja þannig að einhver nenni að lesa. Kannski er það heillavænlegast, en ekki fyrr en eftir allt þetta jóla - og áramótavesen.


Kemur á óvart að Trausti skuli ráðinn ritstjóri á Blaðið

 

Menn hafa lítið velt fyrir sér undanfarna daga hver væntanlegur ritstjóri Blaðsins yrði. Nú er það ljóst, Trausti Hafliðason tekur við skútunni af sme. Mér kemur það á óvart;nafn hans hafði ekki hvarflað að mér, en Trausti er klárlega vel að upphefðinni kominn.Vænn strákur og skemmtilegur. 

Spurningin er nú hverja hann tekur með sér eða hvort þeir sem fyrir eru haldi áfram og fylgi ekki sme. Ég sé það ekki fyrir mér að Binni sitji áfram sem fréttastjóri, hann vildi jú vera ritstjóri en þeir Trausti hafa í gegnum árin verið á svipuðu róli. Voru báðir vaktstjórar á Fb um svipað leyti, en síðan fylgdi Binni sme og Trausti var fréttastjóri á Fb. 

Það er meira en lítið gaman að fylgjast með hræringum á fjölmiðlamarkaðnum, eins dauði er annars brauð og eftir því sem blöðum fjölgar fá fleiri óbreyttir blaðamenn tækifæri til stjórnunarstarfa. Ég hef hins vegar ekki skilið það almennilega hvers vegna menn sækja svo stíft eftir stjórastöðum. Skil ekki hví þeir sem hafa hæfileikana geta bara ekki verið stjörnublaðamenn og ákveðið laun sín á þeim forsendum. En það eru kannski bara þeir sem ekki stíga upp metorðastigann, sem hafa þessa skoðun og afsaka sig með því að það sé bara ekkert gaman að vera ritstjóri.

Nota bene að mér undanskyldri. Ég hef frá upphafi færst undan því að taka að mér stjórastöðu á fjölmiðli þrátt fyirir að hafa átt þess kost. Kann betur við mig á gólfinu enda finnst mér skemmtilegast að skrifa og vera í hringiðu fréttanna. Finnst ekki eftirsóknarvert að raða fréttum inn á síður og standa í því argaþrasi sem fylgir því að vera i ábyrgðarstöðu. 

Það er svo annað mál hvort skynsamlegt er að vera þannig þenkjandi í raun. Reynslan sýnir að hætta er á að menn séu ekki metnir að verðleikum. Hef velt fyrir mér að undanförnu hvort þetta er rétt afstaða. Titilinn virðist hafa allt að segja burt séð frá hæfileikum. Kannski hljóta þeir sem kjósa ekki upphefðina, ekki virðinguna sem stjóranafnbótin gefur. Og því ekki metnir að sanngirni þegar allt kemur til alls.

En Trausta töffara óska ég velfarnaðar í starfi og get fullyrt að það er enginn svikinn af því að vinna við hans hlið eða undir hans stjórn. Um það get ég vitnað; fínn drengur Trausti.


Stríðni Reynis hvolpaföður hittir hann sjálfan fyrir

Reynir minn Traustason sendir mér orð í athugsemdakerfinu og telur mig ekki rökstyðja mál mitt varðandi færslu mína um Pál Ásgeir. Hún er eftirfarandi:

Begga mín kæra. Væri ekki rétt af þér að tilgreina hverjar rangfærslur PÁÁ eru í stað þess að fullyrða eins og þú gerir. Sjálf ertu fórnarlamb Ólínu Þorvarðardóttur sem lýst hefur opinberlega rangfærslum þínum og Mannlífs og þú veist hve auðvelt er að skjóta sendiboðann án ástæðu. Ekki verða eins og bloggari hins fallna forsætisráðherra og staðhæfa án þess að innistæða sé fyrir því. Þú ert alltof vönduð til þess þótt hliðarhoppin séu nokkur þegar kappið ber þig ofurliði. Og meðan ég man; það eru komnir hvolpar.

Óskráður (Reynir Traustason), 11.12.2006 kl. 17:43

Það er hárrétt hjá Reyni, ég fór ekki út í að nefna dæmi um slakleg vinnubrögð Páls Ásgeirs, enda þarfnast það tíma að fara í gegnum þau tilvik þar sem hann fer með rangt mál í öllum þremur greinunum sem hann hefur látið frá sér um fallna fjölmiðla. Hver veit nema að ég geri það ef mér gefst tími til.

Í færslu minni nefndi ég einungis að hann hefði mátt tala við fleiri, nefna heimildarmenn og tala við þá sem að málum komu og vissu gjörla hvernig mál þróuðust. Ég gagnrýndi hann fyrir það og nefni hér að aldrei heyrði ég orð frá Páli Ásgeiri, þrátt fyrir að ég hafi verið í þeirri stöðu á DV að vita nákvæmlega hvað þar fór fram, sat flesta fundi þar um stefnu blaðsins og lagði hjarta mitt og sál í þetta blað. Enda var ég, þó utanaðkomandi fólki væri það ekki kunnugt, í nánu samstarfi við ritstjórana Jónas og Mikael, fréttastjóra og blaðamenn og hafði þar með talsverð áhrif á daglega ritstjórnarstefnu og þróun. 

Fleiri blaðamenn á ritstjórn sem vissu hvernig mál þróuðust, kannski betur en margur annar, kom hann ekki að máli við. Þegar ég las greinina fór ekki fram hjá mér hvað var ofsagt og hvað skorti til að gefa sem réttasta mynd af því sem fram fór á DV síðasta árið áður en upp úr sauð.

Þegar ég las síðan grein hans um NFS fann ég að þar var ekki allt sannleikanum samkvæmt. Bæði vegna þess að NFS var við hlið okkar og samgangur á milli, margir starfsmenn þar mér vel kunnugir og vinir margra okkar. Í mín eyru bárust gagnrýnisraddir þeirra, þar sem einstakra dæma var getið um skort á heimildavinnu Páls Ásgeirs.

Umfjöllun um Birting og Fróða sem Páll Ásgeir fjallaði um nú í síðustu Ísafold var með sama marki brennd; ekki rætt við þá sem skiptu máli og vissu manna best hvað þar fór fram.

Það væri að æra óstöðugan að nefna öll þau dæmi hér, en það er allt eins víst að ég ég gefi mér tíma og taki allar þessar greinar Páls Ásgeirs og fari lið fyrir lið ofan í fullyrðingar og nefni dæmi því til sönnunar að þar er ekki allt sem sýnist.

Ætlun mín var alls ekki að særa Reyni eða gera lítið úr honum. Hann treystir sínu fólki og ver það eðlilega fyrir gagnrýni og eða áskökunum; það skil ég mæta vel. Vona að Reynir minn taki það ekki til sín enda á ég síður en svo nokkuð sökótt við hann blessaðan sem nú er orðin fjögurra hvolpa faðir. Neita því hins vegar ekki að ég hef meira en gaman af að stríða honum dálítið; hann er nefnilega með stríðnari mönnum sjálfur. Það er bæði gömul og  ný saga að stríðnispúkar eins og hann sjálfur, eiga manna efiðast með að taka sjálfur stríðni. Einmitt þess vegna er svo gaman að stríða honum.

 


Blaðið hennar Siggu Daggar

 

Mér finnst menn vilja misskilja Siggu Dögg þegar vitnað er til þess sem hún segir um nýja blaðið þeirra Valda sem þau eru með í burðarliðunum. Menn sem hér á blogginu hafa lagt út af þessum orðum vita alveg hvað hún er að fara þegar hún segir:

Í anda Pulitzer, verður stefna þessa nýja vikurits að eiga ekki neina vini. Auk þess mun blaðið aðeins hafa eina skoðun - að vera alltaf á móti.

Auðvitað er hún að tala um að blaðið eigi að vera gagnrýnið og ekki handbendill neinna afla. Þannig ættu allir fjölmiðlar að vera og ég get ekki annað en fagnað tilkomu þessa blaðs. Sigga Dögg er klár, metnaðarfull og kraftmikil ung kona sem ég trúi að eigi eftir að ná langt á þessu sviði. Það er snjall leikur hjá henni að fá Örnu sér við hlið því fáir eru betur tengdir inn í pólitíkina en Arna.

Arna er líka eldklár og metnaðarfull en hefur alls ekki notið sín á Mogganum. Ég veit að í henni býr langtum meira en hún hefur haft svigrúm til að sýna þar. Ég hef þekkt Örnu lengi og veit hvaða kostum hún er búin. Það verður meira en gaman að fylgjast með þessu blaði, einkum og sér í lagi þar sem konur verða í meirihluta á ritstjórninni.

Ég óska Siggu Dögg, Valda og væntanlegri ritstjórn til hamingju með þetta framtak og hlakka til að fylgjast með.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband